miðvikudagur, ágúst 29, 2007

Nattevagten ja!

ætladi ad kopiera prof sem eg tok a netinu hingad inn, en tokst ekki betur en svo ad ekkert kom.

Fekk samt ad vita ad lif mitt er eins og romantisk komedi, og nu faid tid ad vita tad lika...

Nadi samt a tessu netbrolti minu ad stilla yahooid mitt tannig ad tad opnast i hvert skipti sem einhver a deildinni slær inn yahoo.com. Engin mjøg personuleg bref a donsku eda ensku a næstunni takk fyrir takk ;o) (er samt buin ad eyda tessu ut tannig ad eg geri tilraun a eftir til ad athuga hvort tad hafi tekist :o)

Farin ad mæla blodsykur, sem er nb tad eina sem eg geri i nott! (to tad se 1-4 x i klt ;o)

þriðjudagur, ágúst 28, 2007

blautbolakeppni

Fékk þessi gríðarlega fallegu vinnuföt í nótt. "Kjóll" eins og þessi sem maður sér í ákveðnum lit bíómynda og er alveg á mörkum þess að teljast þægilegur vinnufatnaður, og hvað þá siðsamlegur...

Siðseminni var samt bjargað þegar einn sjúklinganna réð ekki alveg við sturtuhausinn og sprautaði beint á mig svo það mátti ekki á milli sjá hvor var blautari, ég eða sjúklingurinn að sturtunni lokinni.

Lögreglumennirnir sem sátu fyrir framan fataherbergið í alla nótt fengu ágæta vakningu þarna í morgunsárið.

sunnudagur, ágúst 26, 2007

jæja....

Já, þá er maður kominn til dk á ný, og allt að falla í sama horfið aftur. Eða alla vega, komin smá rútína á lífið þó það vanti enn svoldið upp á að allt sé komið á sinn stað eftir ferðalögin... ;o)

Jamboree var skemmtilegt, þó ég hafi nú aldrei séð nema helminginn af þessum öllu saman, og ekki kynnst einni nýrri manneskju sem er harla óvenjulegt. Í staðinn hitti ég samt marga gamla vini, og átti góðar stundir með íslenska fararstjórnargenginu...

Vorum svo nokkra daga í London á meðan skátarnir voru í heimagistingu, tilbúin að redda hlutunum ef eitthvað kæmi upp á, en sem betur fer var ekki mikil þörf fyrir þá aðstoð og flestir skátarnir skemmtu sér vel í sinni dagsskrá þar. Ég hins vegar keypti mér nýjar tevur, en eins og einhverjir gætu hafa tekið eftir voru það tveir vinstri skór sem komu upp úr kassanum heima á Íslandi...

Á Íslandi létum við ástmögurinn svo loksins verða af því sem við höfum talað um í mörg ár og keyrðum hringinn. Lentum í því í fyrsta skipti að reka bílinn upp undir á þjóðvegi 1 (Þvottárskriður) og áttum góðar (matar-)stundir með ýmsum ættingjum og vinum. Við erum strax byrjuð að skipuleggja ferðina næsta sumar :o) (vonandi með engum uppírekstrum þó).

Og nú er það bara vinna.