föstudagur, september 22, 2006

Búin að panta jólaheimferðina

Hafði það af að panta far heim fyrir jólin svo að nú á ég bæði miða heim til Íslands og heim til DK.

Reyndar er flugmiði þessi með þeirri undarlegu dagssetningu 22. desember, lending áætluð 22:50. Þetta er reyndar ekkert undarlegt nema í því ljósi að nú ætlaði ég sko aldeilis að vera komin fyrr heim en í fyrra en þar sem m&p og Sigyn eru að hugsa um að koma hingað þann 20 des þá býður það ekki upp á margar aðrar dagssetningar nema sleppa því þá alfarið að hitta þau fyrr en á næsta ári.

Anna Ey kemur 3-6 nóv. Biggi verður í Köben um helgina, Ari og Bryndís eru enn að reyna að ákveða dagssetningu fyrir heimsókn og Viktoría er, ótrúlegt en satt, að skipuleggja aðra ferð hingað í lok Oktober. Hlakka til að sjá ykkur öll :o)

þriðjudagur, september 19, 2006

þetta kemur allt með hægðunum...

jæja, það er víst kominn tími á almennilega færslu.

Eins og kom fram hérna síðast þá er ég komin aftur út og í þetta skiptið var Stefán með í handfarangrinum. (þó það sé nú eiginelga ekki rétt að segja það, því hann kom ekki fyrr en daginn á eftir mér ;o)

Borgný hafði tekið við lyklunum að nýjú íbúðinni og flutt allt sitt hafurtask þangað áður en hún fór í 2 vikna víkingasiglingu. Elva fékk svo lyklana hjá henni og gat þess vegna komið og hitt mig þegar ég kom af flugvellinum til að opna fyrir mér. Eða það héldum við! Við Elva báðar mættar á tröppurnar, Elva með umslagið frá Borgný óopnað í höndunum og allt ready til inngöngu.

Voða spenna, umslagið opnað og allir (báðar) tilbúnir til inngöngu...

... engir lyklar í umslaginu! (fyrir utan reyndar geymslulykilinn að Holsteinsgade, sem nýttist frekar illa í þessum aðstæðum)

Ekkert sérstaklega góð byrjun en víkingaskipið var komið í höfn og Borgný líka, svo eftir nokkurra tíma bið gat hún komið og opnað fyrir okkur, okkur öllum til mikillar ánægju. Biðin var hins vegar nýtt í mjög svo ánægjulegt pizzaát í boði 7-11 og Elvu, og update á öllum helstu viðburðum liðinna vikna í Danmörku og á Íslandi þar sem Líney og Elva sáu um Danmerkurhliðina en ég um Íslandshliðina.

Þegar inn var komið reyndist íbúðin flennistórt flatarmál með óskiljanlegt magn af veggjum, eða alla vega, óskiljanlegum staðsetningum á þeim! Það getur reyndar verið afskaplega hentugt að hafa vegg sem nær ca 1/5 inn í herbergi hvorum megin frá, ég veit bara ekki enn þá til hvers :o)
Svo er náttúrulega alger nauðsyn að hafa sitthvert herbergið fyrir klósettið og baðvaskinn, ekki viljum við nú blanda þessu tvennu saman! Það sjá allir að það myndi allt fara í rugl og ekki víst að allir vissu hvað ætti að nýta í hvað. Þeir eru sko sniðugir danirnir, búnir að sjá fyrir þessu!
Best er þó staðsetning hurða hérna. Til dæmis er ég með tvær hurðir á sturtunni (sem er reyndar í sama herbergi og klósettið, vona að það fari enginn að ruglast á þessu tvennu!) Önnur liggur úr herberginu þar sem vaskurinn á heima, en hin liggur fram á gang.

Já, fram á gang. Sérstakan stigagang sem væntanlega liggur inn á bað í öllum íbúðunum fyrir ofan okkur líka!

Þetta er nottlega afspyrnu sniðugt fyrirkomulag, og mjög nýtilegt þegar við Stefán komum heim drulluskítug upp fyrir haus eftir mikla erfiðisvinnu útivið. Þá þurfum við ekkert að vera að æða í gegnum íbúðina heldur getum bara labbað beint inn í sturtu eftir sérstökum stigagangi. Það vantar ekki lausnirnar hérna, þetta er bara eins og að vera í Ikea!!!

Við eyddum nóttinni hérna 3, hefðum getað verið hver með sitt herbergið en þá hefði reyndar ein þurft að vera í félagsskap klósetts og sturtu, eða baðvasks, svo við vorum ekkert að því. Þurftum líka að tala svo mikið að það gekk ekkert upp heldur að vera að kallast á ;o)
Skiptum síðan út fólki daginn eftir þegar Líney fór heim til Íslands (og er sárt saknað hérna:´o( en Stefán kom til Danmerkur. Það var reyndar mjög gott, en bæði betra!

Við erum síðan búin að flytja 2 x, einu sinni fluttum við Borgny úr íbúðinni, og einu sinni fluttum við allt dótið af Holsteinsgade í íbúðina.

Það var ævintýri út af fyrir sig þar sem við fengum mannskap sérsendan frá Svíþjóð (Gunnar bróður) og létum húsgögn síga fram af svölum. Fluttum svo allt í bíl sem var leigður frá bílaleigu sem ber það traustvekjandi nafn: lej et lig.

Gunnar fékk svo að borga fyrir gistinguna með rafmagnsvinnu þar sem reynt var að bæta úr ljósaskorti, (ekki að hann hafi lagt neitt af mörkum í flutningunum, nei nei nei) og Viktoría sem kom daginn eftir sá um skápaleysið og setti saman ógrynni af húsgögnum með undirritaðir og ektamakanum. Þau þora hvorugt að koma í heimsókn framar.

Skólinn er líka byrjaður en með hverjum deginum sé ég meira eftir því að hafa ekki fengið tölfræðina hans Tóta metna. Gæti grátið þegar ég hugsa um verkefnið sem ég skilaði í gær!!!!

Þetta fer samt allt að komast á gott ról, bæði íbúðin og líka skólinn (já mamma, ég er dugleg að læra heima :o)

Gott í bili

mánudagur, september 18, 2006

Komin aftur til Köben, vantar far heim f/tölvuna mína!!!

Jæja, nú er ég búin að vera á leiðinni að blogga í ansi langann tíma, og þetta verður líklega eina bloggið í langan tíma í viðbót.

Erum að verða búin að koma okkur fyrir í nýju íbúðinni, Gunnar og Viktoría eru búin að koma í heimsókn, (lítið frí í því fyrir þau, bara húsgagnasamsetningar og rafmagnsvinna ;o) við erum búin að fá internetið tengt, og ég er búin að fá tölvuna mína úr viðgerð.

Ahh, akkurat tad ja. Nadi i hana eftir taepa 2 manada vidgerd, en hef ekki notad hana tvi i fyrsta lagi var ekki nettenging fyrr en i sidustu viku, og 2 lagi tvi verkefnin i skolanum hafa ekki verid tannig ad eg turfi neitt a tolvu ad halda fyrr en nuna um helgina. Skiladi 6 til 7 bls tudi i videnskapsteori i morgun, en tegar eg var ad leggja lokahond a yfirferd hvarf sambandid vid harda diskinn, allt onytt, asamt slatta odru sem eg hafdi gert tann daginn. S.s. Tolvan min er enn bilud og tad vantar far fyrir hana heim, ef einhver vildi vera svo vaenn!!! BJargadi gedheilsu minni, og samnemenda minna, ad vid vorum med tetta a tveimur tolvum ad fara yfir svo tetta var til i odru eintaki.

nenni ekki ad skrifa meira med donsku lyklabordi