mánudagur, nóvember 12, 2007

25000 kr á ári fyrir að eiga tölvu!!!

And... helv... djö...
Nú þarf ég að borga LICENS i dk, af því að ég á tölvu, og af því að ég get mögulega horft á ríkissjónvarpið þeirra í henni!!!! Sem ég btw geri aldrei, og eiginlega frekar að ég ætti að borga þetta til RÚV þar sem ég nýti mér nú stundum það að horfa á fréttirnar þeirra.

Þetta er eitt flugfar heim á ári!!!
Andskotinn.

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

og það er svo fáránlegt að það sé ekki einu sinni námsmannaafsláttur á því!

12 nóvember, 2007 16:24  
Blogger Fríður Finna said...

nákvæmlega!!!
Og þar sem það eru yfirlýst markmið að auka tölvu- og netnotkun í námi, þá er þetta beint á alla námsmenn!!!

12 nóvember, 2007 22:29  
Blogger Jon Ingvar said...

já þetta er rosalegt! Ég átti einmitt að borga RÚV skattinn í fyrsta skiptið 1. sept en rétt slapp þar sem ég flúði land áður. Gott að vera kominn til Hollands þar sem maður er laus við svona vitleysu :-)

13 nóvember, 2007 18:03  
Blogger Ósk said...

Alveg brjál :D
Við svindluðum síðustu tvö skipti og borguðum ekki. Í þetta skiptið ákváðum við að láta samviskuna og hræðsluna við lögbrot að ráða og borguðum okkar skuld :)

14 nóvember, 2007 10:37  
Anonymous Nafnlaus said...

Aldrei ad borga skuldir!

Eg opna aldrei dyrnar nema eg viti hver er a ferd. Oftar en ekki hafa kryddlausir nagrannar thurft ad leita annad en til min, thar sem eg stend stjorf hinum megin vid dyrnar og thori ekki ad opna. Fyrsta hugsun min er alltaf: aetli thetta se sjonvarpskallinn, thegar einhver bankar a hurdina an thess ad vera buinn ad lata vita af ferdum sinum.
Sjonvarpskallar eru martrod. Eg lennti i einum fyrir nokkrum arum og thurfti ad borga aftur i timann!!! Eg hringdi audvitad faum manudum seinna og sagdist hafa gefid sjonvarpid!
Eg fae ju ekki SU sem borgar fyrir mig sjonvarpsnotkun!!

Astaedan fyrir ad nu rukka their lika fyrir tolvur, er klarlega af thvi ad their byggdu svo flotta holl, sem for langt fram ur ollum fjarhagsaaetlunum, hversu oft sem thaer voru endurnyjadar..
Their rugludust adeins og heldu ad skattbuar vildu borga fyrir ad sja fallegt sjonvarpshus heldur en goda dagskra i sjonvarpinu.

Eg er bitur

15 nóvember, 2007 08:22  
Blogger Jón Grétar said...

Við skulum bara vona að RÚV-arar séu ekki að lesa bloggið hjá þér og fái þá flugu í kollinn að koma þessu á heima!

18 nóvember, 2007 12:34  
Blogger Fríður Finna said...

hehe, akkúrat, þá værum við nú fyrst í vondum málum ;)

19 nóvember, 2007 12:10  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er náttúrulega bara rán!!!!
Bestu kveðjur frá húsbyggingarfólkinu.
kv. jýr

22 nóvember, 2007 10:13  

Skrifa ummæli

<< Home