sunnudagur, nóvember 27, 2005

Allt í föstum skorðum

Það virðast allir dagar vera eins nú orðið. Vakna á milli 7 og 8, vera mætt upp í skóla á bilinu 8-9 eftir því hvort ég á stefnumót við lesfélagann/a eða kennarann, borða kalt pasta með túnfiski og þúsund eyja sósu og koma svo heim um 11-12, kíkja aðeins á netið og skríða svo upp í rúm til að ná smá svefni fyrir næstu lotu, sem því miður er alveg eins og þessi fyrri. Og svona verður þetta nánast til 21. des en þá ætlum við Tinna Karen að hoppa upp í flugvél og koma okkur heim í JÓLAFRÍ!!! :o) Erum samt aðeins búnar að breyta út af núna. Lærðum t.d. heima hjá Líney í gær í staðinn fyrir að vera uppi í skóla! Það þarf ekki mikið til að gleðja mann ha!

Við erum samt duglegar að standa okkur í labbinu, hittumst við hornið á sjó númer 2, kl. hálf átta á miðvikudögum og löbbum í kringum sæina 4. Búnar að fara 2x núna og stefnum á að halda þessu áfram næstu sex árin eða hvað? :o)

Í gærkvöldi var julefrokost hjá bekknum mínum. Mormor, mesta gamalmennið í bekknum mínum fékk lánaða íbúð fyrrverandi kærustu sinnar og við komum öll með eitthvað til að setja á borðið og pakka. Bara alveg eins og íslenskt jólahlaðborð fyrir utan að réttirnir voru svoldið öðruvísi en maður á að venjast. Ekki mikið um lifrarkæfu á ísl. jólahlaðborði t.d. ;o) Fórum svo í singstar og ég rúllaði bekknum upp í þessu, þrátt fyrir að hafa haldið að ég væri með hinn hljóðnemann í smá tíma og skildi ekkert af hverju mér tókst ekki að halda línunni/laginu, og ekki einu sinni nálgast það þó ég væri að reyna að rétta mig af, hehe. Þarna var líka undarlegasti pakkaleikur sem ég hef farið í, teningur og glas látið ganga og ef maður fékk 6 þá fékk maður pakka. Og þar sem ég er heppin í ástum en ekki í spilum var manneskjan við hliðina á mér komin með 4 pakka en ég engann! en Svo kláruðust pakkarnir, og þá mátti maður taka af einhverjum öðrum ef maður fékk 6! Endaði með því að ég fékk loksins pakka, eftir langa mæðu, sem við áttum svo að taka upp þarna og þar sem mitt var eitthvað kex/nammi þá var það bara étið á staðnum og ekki mikið eftir af því ;o)
Ég tók samt þá ákvörðum þegar ég var að kaupa pakkann að héðan í frá ætla ég alltaf að gefa dagatalskerti í svona pakkaleiki. Veit ekki hvað ég er búin að fá mikið af ljótu jólaskrauti í gegnum tíðina, sem ég tek aldrei upp úr kössunum fyrir jól í dag! Kannist þið ekki við þetta sama? Mér finnst alla vega miklu betra að fá þá bara eitthvað sem maður getur brennt! Ég veit hins vegar ekki hvort sálfræðin hans Stefáns er búin að smitast yfir á mig því þetta hljómar svoldið eins og óskalistinn hans fyrir öll jól og afmæli -eitthvað að bíta og brenna ;o) Og fyrst ég er að tala um Stefán, þá eru bara 6 dagar í dag þangað til hann kemur !!! :o)


Í morgun var ég svo vakin af room-mateunum til að fá mér fylltar pönnukökur i morgunmat, ekki amalegt það! Nýbakaðar pönnukökur (mun þykkari en þessar sem við þekkjum þó) með alls kyns ávöxtum inní. Skreið svo aftur upp í rúm þar sem þessi 3 tíma svefn sem ég var búin að fá var ekki alveg að uppfylla svefnþarfir mínar, og lá þar þangað til ég fór á ísl. jólamarkað úti í Jónshúsi.

Það var s.s. jólamarkaður hjá íslendingafélaginu og ég keypti mér góu kúlur og lindubuff, namm namm :o) Er samt svoldið fyndið hvað allt íslenskt verður manni mikilvægt svona þegar maður er í útlöndum. Borða t.d. miklu meira af íslensku nammi heldur en ég geri nokkurn timann á Íslandi!
En við vorum búnar að ákveða að hittast þarna, Liney, Elva og Tinna Karen, og kíkja á Íslendingana og fara svo og fá okkur að borða og kíkja í bæinn á eftir. Enduðum heima hjá Elvu með Thailenskan mat og rauðvín, og ræddum andleg málefni og líknarmorð, sem voru heit málefni og ekki allir sammála þar :o) Fórum svo í bæinn en nu er gamalmennið í hópnum komið heim og ætlar að fara að sofa!

Mig vantar hins vegar góðar hugmyndir að nesti fyrir skólann,svona áður en ég breytist í túnfisk með skrúfulaga sporð. Allt vel þegið :o)

Góða nótt allir

3 Comments:

Blogger Kristín Una said...

Gátuð þið ekki verið að ræða heiðursmorð frekar? Sit hérna "sveitt" og reyni að púsla saman tok-fyrirlestri um það. Kannski frekar reyndar tok þátturinn sem væflist fyrir manni.
Anyways. Ég segji jógúrt og grænmetissamloku í skólann. og banana líka. Hollt og gott fyrir heilagreyið sem er hjakkað út allan daginn.

27 nóvember, 2005 02:56  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég kannast við þetta nestistvandamál, það er svooo erfitt að gera sér nesti, maður festist alltaf í sama farinu og fær leið á því sem maður tekur alltaf með.

Mér finnst góð tilbreyting að setja allskonar grænmeti og solleis í pítubrauð eða brytja niður ávexti í box. Svo gætiru gert hrísgjóna/risotto rétti sem hægt er að hafa kalda.

Anna Ey

27 nóvember, 2005 13:19  
Anonymous Nafnlaus said...

samloka með skinko'osti. Hefur ekki klikkað í yfir fimmtán ár. mælimeððí ;)
epli í drekkutímanum!

29 nóvember, 2005 20:23  

Skrifa ummæli

<< Home