þriðjudagur, júní 05, 2007

á Íslandi náði ég að hitta Önnu og Jens sem voru að skoða innréttingar í nýja húsið sitt :o) Þau gistu hjá mér (mömmu) og þar með gátum við hittst seint á kvöldin og snemma á morgnana en annars hefði líklega orðið minna úr hittingi. Gott fyrirkomulag fyrir busy people!!!

Og svo kom íslenski sjúkraþjálfunarbekkurinn minn úr útskriftarferð frá Thailandi í gær, og stoppaði í morgunmat og tívolí í Köben. Snilldardagur og takk kærlega fyrir hann öll sömul :o)
En þetta þýðir sem sagt að ef ég hefði ekki ákveðið að gerast læknir, þá hefði ég verið að fara að útskrifast eftir 12 daga!!!!! Alveg ótrúleg tilhugsun, og kannski helst fyrir það að manni finnst maður allt í einu vera að verða fullorðinn!! Búinn í skóla og bara lífið sjálft eftir!!! Eins gott að það á ekki við um mig ;o)

Hef þau Hauk og Rannveigu ennþá hjá mér, en þau fara ekki heim fyrr en á miðvikudaginn svo enginn tómleiki í kotinu hjá mér, þrátt fyrir endalaust rápið á kallinum.....

adios pípúl

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæhæ:) Við erum nú meiri unglömbin! ;) Ótrúlegt að þau séu búin. Knúsaðu Hauk og Rannveigu frá mér og eitt knús á þig líka ;)

05 júní, 2007 21:27  
Anonymous Nafnlaus said...

"...endalaust rápið á kallinum..." !!
Heyra þetta.
Þó maður bregði nú undir sig begtri fætinum einu sinni eða tvisvar, til að draga björg í bú.
Ekki er það ég sem er með lýsinguna Svíþjóð - Danmörk - Ísland - Slóvenía - Ísland - Danmörk - Ísland - Danmörk - Sviss - Danmörk - Hróarskelda - England - Ísland - Danmörk á msn-inu mínu!

05 júní, 2007 23:57  

Skrifa ummæli

<< Home