fimmtudagur, nóvember 02, 2006

Tíminn líður hratt...

... og það er aftur komin helgi!

Eða alla vega svona næstum því.

Á morgun hrúgast inn til okkar gestirnir, Ísak og Ómar um hádegi, og Anna passlega í kvöldmatinn. Seinna koma svo allir hinir því við ætlum að halda upp á það að við erum flutt í nýja íbúð og gera staðinn að heimili. Vitum reyndar eiginlega ekkert hversu margir eru að fara að mæta, svo það verður fróðlegt að sjá!

Veturinn er skollinn á hérna í Kóngsins Köben og nú bölvar maður öllum gluggunum, því hvergi flýgur hitinn hraðar út en þar. Hjálpar kannski ekki að vera með tvennar útidyr á ekki stærri íbúð, en hvað um það...

Keypti ljós til að hengja upp í eldhúsinu í gær, sjáum til hvort þau komast upp á næstu vikum eða mánuðum. Endar kannski með því að pabbi fái vinnu þegar hann kemur í december...?

Jólin eru enn höfuðverkur, hver á að vera hvar hvenær. Eitt er þó víst og það er að ég á flug þann 1. janúar kl. 08:00 þannig að valið er einfalt. Gamlárskvöld í Reykjavík, eða nýársnótt á þjóðvegi 1. Guess what I'm gonna do?!?!

Best að fara og reyna að redda þessu með íbúðina, þannig að gestirnir geti talið sér trú um að ég sé fyrirmyndarhúsmóðir!

adios


p.s.
Mig vantar alveg svakalega mikið að blogg/barnalandssíðum sem voru í Favorites í "gömlu" tölvunni minni, þannig að ef þú hefur vægan grun um að ég hafi stundum kíkt á síðuna ÞÍNA, þá máttu endilega senda mér slóðina. Og líka þó þig gruni það ekki neitt en viljir koma henni á framfæri!!! Annað hvort í komments eða bara á yahooið mitt gamla!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Sæl frænka. Fannst alveg kominn tími á að ég commentaði hér, enda er ég dyggur lesandi! Hefði gefið mikið fyrir að sjá svipinn á tollvörðunum í Leifsstöð, þegar beinin sáust í gegnumlýsingunni. Var sjálf í Bandaríkjunum í haust og þorði ekki að taka annað en visakortið í handfarangurinn. Hafðu það annars gott í danska vetrinum, ég vona að ég hafi tækifæri til að heilsa upp á þig fyrr en síðar ;o) Kv. Edda

03 nóvember, 2006 23:26  
Blogger Fríður Finna said...

Hæ Edda :o) gaman að sjá þig hérna!

Það er nottlega ekki spurning að þú verður að kíkja til mín hingað! Vonandi fyrr en seinna... ;o)

08 nóvember, 2006 21:51  

Skrifa ummæli

<< Home